4.1.2017 / Landgræðsla ríkisins óskar eftir að ráða héraðsfulltrúa með aðalstarfssvæði í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum með aðsetur á Húsavík. Hann þarf að hafa sveigjanleika og vera tilbúinn til að taka þátt í þróun starfsins og breytingum sem kunna að verða á starfinu og vinnustaðnum. Landgræðsla ríkisins er þekkingar- og þjónustustofnun. Markmið hennar eru verndun gróðurs og jarðvegs og bætt landgæði. Stofnunin starfar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 17/1965 og lögum um varnir gegn landbroti nr. 91/2002.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Öflun upplýsinga, ráðgjöf og eftirlit með verkefnum í Bændur græða landið, Landbótasjóði og öðrum landgræðsluverkefnum.
• Áætlanagerð og umsjón landgræðsluverkefna á starfssvæðinu.
• Vöktun á ástandi gróðurs og jarðvegs og fylgjast með að lögum um landgræðslu sé framfylgt.
• Aðstoð við gerð beitar- og uppgræðsluáætlana fyrir einstakar bújarðir og stærri svæði.
• Skráning landgræðsluaðgerða og eftirlit með árangri þeirra.
• Fræðsla og ráðgjöf til sveitarstjórna, landnotenda, skóla og almennings.
• Önnur verkefni
Menntun og hæfni
• Krafist er BSc-prófs í náttúruvísindum, t.d. landnýtingu, beitarfræðum eða umhverfisfræðum
• Almenn þekking eða reynsla af landbúnaði
• Skipulagshæfni, sveigjanleiki og góð samstarfshæfni
• Góð kunnátta í notkun tölvu og upplýsingatækni og góð íslenskukunnátta, skilyrði
• Þekking og reynsla af landgræðslustarfi, kostur
• Þekking og reynsla af notkun landupplýsingakerfa, kostur
Um er að ræða 100% stöðu, starfinu geta fylgt talsverð ferðalög, megin starfssvæðið er Norðurland. Stafið hentar bæði konum og körlum. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf 1. apríl 2017.
Laun er skv. kjarasamningi ríkisins og FÍN félags náttúrufræðina. Nánari upplýsingar um starfið veita Árni Bragason arni.bragason@frettir.land.is, Daði Lange Friðriksson dadi@frettir.land.is og Sigurbjörg B. Ólafsdóttir sigurbjorg@frettir.land.is.
Umsókn skal fylla út og senda rafrænt. Smella hér. Ferilskrá og afrit af prófskírteini skal fylgja. Einnig má senda umsókn til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.
Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2017.