Select Page

11.08.2016 / Beitarmál hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu. Það er því mikill fengur í alþjóðlegri ráðstefnu um búfjárbeit sem verður haldin á Hótel Natura í Reykjavík dagana 12.-15. september. Ráðstefnan er styrkt af áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um sjálfbæra þróun. Norræni genabankinn – NordGen – stendur fyrir ráðstefnunni ásamt Landgræðslu ríkisins.

Búfjárhald og beit hefur umtalsverð áhrif á vistkerfi heimsins. Búfjárbeit á úthaga er einkum stunduð á jaðarsvæðum sem henta ekki til annars búskapar. Þar hefur hún mjög víða leitt til alvarlegrar landeyðingar. Annarsstaðar hefur beit mótað menningarlandslag sem nú er metið til verðmæta sem beri að varðveita. En nú eru breytingatímar. Æ meiri kröfur eru gerðar um sjálfbærni, þar með um sjálfbæra nýtingu beitilands. Þess vegna dugir ekki lengur að hugsa eingöngu um afköst og hversu mikið sé hægt að framleiða hér og nú. Stjórn og stefnumótun í landbúnaðarmálum þarf að mótast af fleiru en því hversu mikið hægt er að framleiða. Þar er nefnd aðlögun og aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, beit og landeyðingu, verndun beitarlandslags, beit og fæðuöryggi auk lagaumhverfis og stuðningskerfa beitarbúskapar.

Allt þetta verður til umræðu á ráðstefnunni á Hótel Natura dagana 12.-15. september. Þar koma til leiks sérfræðingar með fjölbreyttan bakgrunn til að ræða beitarmál á Norðurlöndunum og víðar. Dagskrá ráðstefnunnar og nánari upplýsingar er að finna á www.nordicgrazing2016.org .

Skip to content