Select Page

19. nóvember 2015. Miðvikudaginn 25. nóvember kl. 08:15-10:00 verður morgunverðarfundur á Nauthóli í Nauthólsvík undir yfirskriftinni ÁR JARÐVEGS – ÖLD UMHVERFISVITUNDAR – ALDA NÝRRAR HUGSUNAR! Jarðvegsvernd gegn loftslagsbreytingum. Fundurinn er sá síðasti í fundaröð sem Samstarfshópur um Alþjóðlegt ár jarðvegs 2015 hefur staðið fyrir undanfarna mánuði.

Á þessum fundum hefur verið opnað á umræðu um vistkerfi jarðar og tengsl jarðvegsverndar og sjálfbærrar þróunar. Sömuleiðis hvernig Íslendingar geta lagt sitt af mörkum til að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga og stuðlað að framgangi nýrra heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Framsögur og pallborðsumræður á fundinum í Nauthóli munu taka mið af ofangreindu og fjalla um ábyrgð okkar sem þjóðar. Hvað getum við gert til að bregðast við umhverfisáskorunum nútímans og hvernig hrindum við þeim áformum í framkvæmd?

Opnun
Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri.

DAGSKRÁ

Af litlum fræjum í frjórri mold
Þórunn Pétursdóttir, Landgræðslunni.

Sjálfbærni til framtíðar Ný heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Anna Pála Sverrisdóttir, utanríkisráðuneytinu.

„Grunuð um Grósku”
Aukum umhverfisvitund
Kristján Hreinsson, skáld og heimspekingur.

Pallborðsumræður: Hver er ábyrgð okkar?
Umræðustjóri: Bogi Ágústsson, RÚV.
Þátttakendur: Kristín Helga Gunnarsdóttir, Bjartmar Alexandersson, Haukur Ingi Jónasson, Guðrún Pétursdóttir og Ólafur Arnalds.

Fundarstjórar: Hafdís Hanna Ægisdóttir, Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, Þröstur Freyr Gylfason, Félagi Sameinuðu þjóðanna.

Ávarp
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Skip to content