Select Page

9. nóvember 2015. Landgræðsla ríkisins auglýsir eftir umsóknum um styrki til varna gegn landbroti. Um er að ræða styrki sem veittir eru til slíkra verkefna skv. lögum nr. 91/2002 um varnir gegn landbroti. Styrkirnir eru veittir til hvers konar verkefna til varnar því að vatnsföll eyði mannvirkjum eða gangi á gróið land. Við forgangsröðun verkefna er m.a. höfð hliðsjón af verðmæti þeirra mannvirkja eða lands sem landbrot ógnar.

Umsóknarfrestur er til 15. desember 2015. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru á heimasíðu Landgræðslunnar, www.land.is , en einnig er hægt að hafa samband við Landgræðsluna í Gunnarsholti, sími 488 3000 og héraðssetur Landgræðslunnar um land allt.

Umsóknum skal skila til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella eða á netfangið land@frettir.land.is

Landgræðsla ríkisins Gunnarsholti, 851 Hella – Sími 488 3000 – Netfang land@frettir.land.is

Skip to content