Select Page

Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra afhenti Landgræðslunni í gær,  sumardaginn fyrsta,  umhverfisverðlaun Ölfus við hátíðlega athöfn á Reykjum í Ölfusi í húsakynnum Landbúnaðarháskóla Íslands. Þetta var í 6. sinn sem Sveitarfélagið Ölfus veitir þessi verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í umhverfsmálum.  Forsætisráðherra rakti sögu sandgræðslu við Þorlákshöfn og sagði að samfélagið í Þorlákshöfn ætti landgræðslustarfi tilvist sína að þakka.  Sigurður Ingi sagði að í upphafi landgræðslustarfs í Þorlákshöfn hefðu aðeins tvær fjölskyldur búið á staðnum en nú væri þar mikil útgerð, fiskvinnsla og blómlegt mannlíf með á annað þúsund íbúa. Ráðherra gat um að ávallt hefði verið frábært og umfangsmikið samstarf á milli Landgræðslunnar og sveitarfélagsins um uppgræðsluframkvæmdir. Myndina tók Magnús Hlynur.  Verðlaunagripinn gerði Dagný Magnúsdóttir.

 

Skip to content