Select Page

5. mars 2015  | Á ráðstefnu sem haldin verður í Gunnarsholti á Rangárvöllum föstudaginn 20. mars verður fjallað á margvíslegan hátt um þá möguleika sem felast í nýtingu lífræns úrgangs, meðal annars til skógræktar og landgræðslu. Í hádegishléi verður í boði léttur málsverður. Dagskráin hefst kl. 10 og lýkur kl. 17. Viðfangsefni ráðstefnunnar er nýting þeirra verðmæta sem felast í lífrænum úrgangi. Fjallað verður um hugtökin úrgang og hráefni og farið yfir stöðuna hérlendis, hvaða farvegir eru fyrir lífrænan úrgang og um lausnir sem notaðar eru á ýmsum stöðum á landinu.

Skráning á ráðstefnuna fer fram í tölvupósti til Eddu Linn Rise á netfangið eddalinn@frettir.land.is. Þátttakendur eru beðnir að skrá sig sem fyrst. Ráðstefnan verður send út á netinu. Til þess að fylgjast með henni þar er nóg að smella hér.
Dagskrá

9.30 Skráning gesta, morgunkaffi og horft til himins. Allt að 98% deildarmyrkvi á sólu í Gunnarsholti kl. 9.37

10.00 Gestir boðnir velkomnir. Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri

10.05 Setning ráðstefnunar – fulltrúi vinnuhóps

10.15 Úrgangur eða hráefni, úrgangur í dag neysluvara á morgun – Lúðvík E. Gústafsson, Sambandi íslenskra sveitarfélaga

10.45 Nýting lífræns úrgangs.
Staðan um þessar mundir
a. Farvegir og straumar – Eiður Guðmundsson
b. Lausnir á Suðurlandi, Orkugerðin Guðmundur Tryggvi Ólafsson

11.30 Af hverju ætti sveitarfélag að velta lífrænum úrgangi fyrir sér? Stefán Gíslason, Environice

12.00 Hádegismatur

13.00 Ávarp Sigrúnar Magnúsdóttur, umhverfisráðherra

13.20 Lög og reglugerðir á mannamáli. Hvað má og hvað má ekki? – Elsa Ingjaldsdóttir, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Guðrún Lind Rúnarsdóttir, Matvælastofnun

13.40 Ný gas- og jarðgerðarstöð á höfuðborgarsvæðinu. Björn Hafsteinn Halldórsson, Sorpu

14.00 Vinnslutækni, nýting og umhverfisáhrif. Teitur Gunnarson, Mannviti

14.20 Stefnumótun hjá ríki og sveitarfélögum.
Hver á að draga vagninn?
Laufey Guðmundsdóttir, lögfræðingur í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Lúðvík E. Gústafsson, Sambandi íslenskra sveitarfélaga

14.50 Reynslusögur
a. Lífræn ræktun í Skaftholti
b. Hekluskógaverkefnið
c. Landgræðsla með kjötmjöli og gor

15.20 Kaffi

15.40 „Er ekki tími til kominn að tengja?”
Verkefni og hugmyndir í gangi
a. Verkefni UST. Öflun upplýsinga um lífrænan úrgang. Styrkt af norrænu ráðherranefndinni. Guðrún L. Kristinsdóttir, Umhverfisstofnun
b. Verkefni Landgræðslunnar í nýtingu lífræns úrgangs. Magnús H. Jóhannsson, Landgræðslunni
c. Hagkvæmni metanframleiðslu. Dofri Hermannsson, Íslenska gámafélaginu

16.30 Pallborðsumræður – Guðrún Lind Rúnarsdóttir, Lúðvík E. Gústafsson, Stefán Gíslason og Teitur Gunnarsson

16.50 Ráðstefnuslit, samantekt

Aðstandendur ráðstefnunnar eru Sorpurðun Vesturlands, Molta ehf. Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga ásamt Landgræðslu ríkisins og Skógrækt ríkisins. Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, verður ráðstefnustjóri.

Undirbúningsnefndina skipa:
Eiður Guðmundsson, formaður
Hrefna B. Jónsdóttir, Sorpurðun Vesturlands
Lúðvík Gústafsson, Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Magnús H. Jóhannsson, Landgræðslu ríkisins
Ólöf Jósefsdóttir, Moltu ehf.
Pétur Halldórsson, Skógrækt ríkisins
Þórarinn Egill Sveinsson, SASS, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.

Skip to content