Select Page

3.4.2018 / Nýr hópur nema hefur hafið nám við Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna (HSþ) en skólinn er hýstur af Landbúnaðarháskóla Íslands í samvinnu við Landgræðslu ríkisins. Í ár eru nemarnir alls 17 og koma frá níu löndum í Afríku og Asíu. Nemarnir eru allir starfandi sérfræðingar í sínum heimalöndum og hafa fengið leyfi frá störfum til að sækja sex mánaða námskeið Landgræðsluskólans um landhnignun og afleiðingar hennar, sjálfbæra landnýtingu og vistheimt.
Nemarnir koma frá Gana, Eþíópíu, Úganda, Lesótó og Malaví í Afríku og frá Mongólíu, Kirgistan, Tadsíkistan og Úsbekistan í Mið-Asíu. Í heimalöndum sínum starfa þau á sviði landnýtingar og landverndarmála, ýmist við rannsókna- og eftirlitsstofnanir, héraðsstjórnir, ráðuneyti eða háskóla, en einnig starfa sum þeirra á vegum frjálsra félagasamtaka.
Að loknu námi við Landgræðsluskólann fara þau aftur til sinna starfa, þar sem námið mun nýtast þeim í þeim áskorunum sem þau þurfa að takast á við í sinni vinnu.

Skip to content