5.10.2016 / Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, Árni Bragason landgræðslustjóri og Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri skrifuðu í dag undir fimm ára samning um áframhaldandi endurheimt Hekluskóga. Árleg fjárveiting til verkefnisins er 27,5 milljónir.
Stofnað var til Hekluskóga árið 2007. Meginmarkmið verkefnisins nú sem þá er að byggja upp skóga og kjarrlendi með birki og öðrum tegundum til að græða land og verjast náttúruvá á Hekluskógasvæðinu. Ýmis önnur jákvæð áhrif fylgja verkefninu s.s. aukin binding kolefnis í jarðvegi og gróðri og aukin líffræðileg fjölbreytni á svæðinu.
Fjölmargir hafa komið að undirbúningi og framkvæmd Hekluskógaverkefnisins s.s. landeigendur á svæðinu, skógræktarfélög beggja vegna Þjórsár og Landbúnaðarháskóli Íslands. Innan Hekluskóga hefur verið unnið að mjög fjölbreyttum verkefnum og má þar nefna fræsöfnun af birki til sáninga, nýtingu kjötmjöls til uppgræðslu, fjölþættar rannsóknir og samstarf við ýmis samtök og fyrirtæki um landbótaverkefni innan starfssvæðis Hekluskóga.
Samningurinn sem var undirritaður í dag gildir til fimm ára og felur í sér að Skógræktin og Landgræðsla ríkisins annast framkvæmd verkefnisins og þar með talið samstarf við þá aðila sem að því koma.
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar samningurinn var handsalaður. F.v. Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri, Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra og Árni Bragason, landgræðslustjóri. Sjá hér hluta úr ræðu Sigrúnar Magnúsdóttur.