Select Page

18. maí 2015  | Landvernd og Landgræðsla ríkisins efna til hádegisfyrirlestrar miðvikudaginn 20. maí n.k. í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirlesturinn hefst kl. 12. Fyrirlesari er Andrés Arnalds fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins. Fyrirlesturinn nefnir Andrés Stígum varlega til jarðar – Álag ferðamennsku á náttúru Íslands.

Hin ofurviðkvæma náttúra Íslands er hornsteinn vaxandi ferðaþjónustu, atvinnugreinar sem færir landsmönnum mestan erlendan gjaldeyrir. Álag á viðkvæma staði og ferðaleiðir er víða of mikið og afleiðingin er tímabil stórfelldra skemmda á viðkvæmri náttúru landsins. Það bíða fjölmörg og áríðandi verkefni ef tryggja á framtíð þessarar mikilvægu atvinnugreinar og efla fagmennsku við slíkar úrbætur. Hve vel eru stjórnvöld, stofnanir og hinir ýmsu hagsmunaaðilar í stakk búin í að vernda gullgæs ferðaþjónustunnar, náttúru Íslands? Hve vel hugum við að þeirri auðlegð sem felst í víðernum og fegurð landsins. Er litið á umhverfisáhrif ferðaþjónustunnar sem ferðamál en ekki umhverfismál?

Andrés Arnalds er fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins. Hann er menntaður í landbúnaðarfræðum frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og sérfræðingur í vistfræði beitilanda og landgræðslu frá ríkisháskólunum í Washington og Colorado í Bandaríkjunum. Hann er áhugamaður um útivist og hefur ferðast víða bæði innan lands og utan.

Skip to content