Select Page
5.12.2018 / Landgræðsla ríkisins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr Landbótasjóði Landgræðslunnar, en sjóðurinn úthlutar árlega styrkjum til margvíslegra landbótaverkefna til félagasamtaka, bænda, sveitarfélaga og annarra umráðahafa lands.

Við ákvörðun um styrkveitingar er m.a. lögð áhersla á:
-Stöðvun hraðfara jarðvegsrofs og gróðureyðingar
-Endurheimt gróðurs og jarðvegs
-Að landnýting verði sjálfbær

Við mat á umsóknum er ennfremur tekið tillit til þess hvort gerð hafi verið landgræðslu- og landnýtingaráætlun til a.m.k. 3ja ára fyrir það svæði sem ætlunin er að vinna á.

Styrkur til einstakra verkefna getur að hámarki numið 2/3 af áætluðum kostnaði þess að mati Landgræðslunnar. Landgræðslan veitir ráðgjöf við framkvæmd þeirra verkefna sem sjóðurinn styrkir og hefur jafnframt eftirlit með framvindu þeirra og metur árangur.

Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur sjóðsins eru á heimasíðu Landgræðslunnar land.is. Smella hér til að komast á réttan stað. Einnig er hægt að nálgast þessi gögn og fá nánari upplýsingar á héraðssetrum Landgræðslunnar og á skrifstofu Landgræðslunnar í Gunnarsholti. Smella hér til að sjá síðu Landbótasjóðs á heimasíðunni.

Umsóknarfrestur er til 4. janúar nk. og umsóknir skal senda á netfangið land@frettir.land.is eða til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella.

 

Skip to content