Select Page

19.9.2018 / Í síðustu viku útskrifuðust 17 sérfræðingar, 10 konur og sjö karlar, úr árlegu 6-mánaða námi Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Hópurinn er sá stærsti til þessa og hafa nú alls 118 sérfræðingar útskrifast frá skólanum, 56 konur og 62 karlar. Í hópnum í ár voru í fyrsta skipti nemar frá Tadsjikistan sem er nýtt samstarfsland Landgræðsluskólans og eru samstarfslöndin þá orðin fjögur í Mið-Asíu en auk Tadsjikistan eru það Kirgistan, Úsbekistan og Mongólía. Frá Afríku komu í ár sérfræðingar frá Eþíópíu, Gana, Malaví, Lesótó og Úganda.

Að þessu sinni útskrifuðust 17 sérfræðingar, 10 konur og sjö karlar, úr árlegu 6-mánaða námi Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna.

Við útskriftarathöfnina, sem fram fór í Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti, ávarpaði ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Sturla Sigurjónsson, gesti útskriftarinnar. Auk hans tóku til máls Barron Joseph Orr frá Eyðimerkursamningi Sameinuðu þjóðanna (UNCCD), Árni Bragason, Landgræðslustjóri og formaður stjórnar Landgræðsluskólans, Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður skólans og Sæmundur Sveinsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sem lokaði athöfninni. Þar að auki fluttu tveir útskriftarnemar ræðu fyrir hönd útskriftarhópsins, þau Iddrisu Latif Nasare frá Gana og Robiya Nabieva frá Tadsjikistan.

Í ár voru einnig 17 fyrrum nemar Landgræðsluskólans viðstaddir útskriftina. Einn þeirra er meistaranemi við Landbúnaðarháskóla Íslands en hinir 16 komu sérstaklega til landsins til að taka þátt í ráðstefnu Evrópudeildar alþjóðlegu vistheimtarsamtakanna (Society for Ecological Restoration) SER Europe 2018 (sjá www.sere2018.org) sem haldin var í Reykjavík dagana 9.-13. september. Ein þessara fyrrum nema, Beatrice Dossah frá Gana, var ein af sjö aðalræðumönnum (keynote) á ráðstefnunni auk Hafdísar Hönnu Ægisdóttur forstöðumanns Landgræðsluskólans. Á ráðstefnunni var Landgræðsluskólinn jafnframt með málstofu um hvernig nota megi þekkingu í landgræðslu til að ná Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna (e. Sustainable Development Goals) þar sem þrír fyrrum nemar frá Gana, Lesótó og Kirgistan voru með innlegg auk Barron Joseph Orr, leiðandi sérfræðings (e. lead scientist) Eyðimerkursamnings Sþ og Berglindar Orradóttur aðstoðarforstöðumanns Landgræðsluskólans. Á ráðstefnunni fluttu auk þess þrír fyrrum nemar erindi í hinum ýmsu málstofum og 11 fyrrum nemar kynntu rannsóknir sínar á veggspjöldum. Auk alls þessa skipulagði Landgræðsluskólinn vinnusmiðju á ráðstefnunni, ásamt samstarfsaðilum, um hvernig landgræðsla og endurheimt landgæða getur skapað atvinnu- og viðskiptatækifæri til framtíðar og bætt afkomu fólks og samfélaga.

Það var mjög ánægjulegt að sjá svo stóran hóp fyrrum og núverandi nema Landgræðsluskólans samankominn, bæði á ráðstefnunni en líka á útskriftinni þar sem fyrrum nemar gátu hist og tengst á milli landa og árganga.

Fyrrum nemar, útskriftarnemar og starfsfólk á útskriftardaginn.

Skip to content